Ţetta er ţađ vinsćlasta í Noregi í dag + yfirlit
27. september 2007 klukkan 19:24
Já, þetta er það vinsælasta hjá Nossaranum í dag. Þetta er svona skólarapp, alveg magnað.
En allavega þá er ég búinn að kaupa mér miða á alla leiki Íslands í riðslakeppninni á EM. Gerði það fyrsta daginn sem miðasalan opnaði á netinu. Það væri samt synd að segja að þetta sé gefis, en það er ekki hægt að sleppa þessu þegar maður er á staðnum.
Núna er tímarnir á labinu farnir að kikka verulega inn, steyputilraunir, jarðefnagreining, triaxial test og allur fjandinn, hérna er Magni íslenski og Lisa norska í steyputilraun í síðustu viku. Stelpurnar voru nú ekki sérlega verklegar en þá komum við Magni auðvitað og sýndum þeim hvernig íslenskir karlmenn moka steypu.


Skemmtannalífið hefur nú ekki verið að taka mikinn toll af manni. Maður hefur þó aðeins litið út á lífið. Fór á suddalegann bara á laugardaginn síðasta, hann er á einhverjum 4 hæðum með allt milli himins og jarðar. Tók eitt myndband á píanóbarnum. Það er óhætt að segja að píanóleikarinn hafi verið að fíla sig:
En allavega, ég er á leiðinni heim 11-15. okt í 4 daga. Það verður næs, borða íslenskann mat, fara á gæs og fara á
barinn og segja: Sæl, má ekki bjóða þér eitthvað að drekka, i stað þess að segja: kan jeg fa by pa en drik, með slæmum hreim.
Svo sjáumst þá ef ég blogga ekki fyrr en þá.
KV. Krummi
Einar Hrafn Hjálmarsson








